36) Fljúgum hærra - Grace Slick (Jefferson Airplane)
Fljúgum hærra · Lovísa og Linda
30. november 2022 1t 16m
0:00 1t 16m
Beskrivelse
Grace Slick var í miðri hringiðu psychedelic tónlistarsenunnar í San Francisco um miðjan sjöunda áratuginn. Hún spilaði með hljómsveit sinni Jefferson Airplane á Woodstock og á hinu fræga Monterey festivali 1967. Hún verður svo óvænt 80´s poppstjarna komin á fimmtugs aldurinn þannig að tónlistin hennar er spiluð bæði af hippakynslóðinni og MTV kynslóðinni. Richard Nixon, Hells Angels og veitingahúsakeðjan alræmda Chick-fil-A koma líka við sögu.