Spring til indhold
Spjallið með Frosta Logasyni | S02E56 | Brottflutningar á óæskilegum ríkisborgurum í Evrópu gætu verið skynsamlegir - Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættir

Spjallið með Frosta Logasyni | S02E56 | Brottflutningar á óæskilegum ríkisborgurum í Evrópu gætu verið skynsamlegir

Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættir · Brotkast ehf.

19. september 2024 6m
0:00 6m

Beskrivelse

Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor emirítus í stjórnmálafræði, er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Í þessu viðtali ræðir hann meðal annars um bandarísku forsetakosningarnar og þá miklu gerjun sem er að eiga sér stað í evrópskum stjórnmálum um þessar mundir. Hannes segir almenning í Evrópu vera farinn að upplifa að stjórnmálastéttin hlusti ekki lengur á vilja meirihlutans sem leiði til fylgisaukningar á lýðhyllisflokkum og að fjölmiðlar eigi til að rangtúlka niðurstöður slíkra kosninga í anda vinstri sinnaðrar rétttrúnaðarstefnu. Hann segir ljóst að stór hluti kjósenda vilji ekki meiri straum innflytjenda frá svæðum sem eru menningarlega mikið ólík því sem tíðkast á Vesturlöndum. Hannes viðrar hugmyndir um að óæskilegum hópum, jafnvel þó þeir séu komnir með ríkisborgararétt í Evrópu, verði gert að færa sig aftur til upprunalanda sinna og bendir á að hægt væri að bjóða fyrir það ákveðið verð til að tryggja að ekki verði farið gegn grundvallarreglum réttarríkisins. Afar áhugavert viðtal. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Andre episoder fra Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættir Se alle episoder →