Spring til indhold
Mannréttindastefnan hefur ekkert með mannréttindi að gera | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E15 - Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættir

Mannréttindastefnan hefur ekkert með mannréttindi að gera | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E15

Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættir · Brotkast ehf.

20. marts 2026 4m
0:00 4m

Beskrivelse

Hlédís Maren Guðmundsdóttir er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Hún er einn af frambjóðendum Miðflokksins í Reykjavík fyrir komandi borgarstjórnarkosningar og hefur þar ýmislegt til málanna að leggja. Hún ræðir í þessu viðtali um Mannréttindaskrifstofu Reykjavíkur sem hún vill að verði lögð niður enda segir hún mannréttindastefnuna ekkert hafa með raunveruleg grunnmannréttindi að gera. Þá fjallar hún líka um ábyrgð sveitarfélaga á hælisleitendum og flóttamönnum sem hún segir að hafi leitt til þess að borgin er að yfirbjóða leigumarkað í Reykjavík með niðurgreiðslum til málaflokksins. Þá vill hún einnig gera grundvallarbreytingar á dagvistunarmálum í borginni og hleypa fleiri rekstraðilum þar að til að bjóða foreldrum upp á fjölbreyttari og betri þjónustu.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Andre episoder fra Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættir Se alle episoder →